|
|
21.05.2006 23:25:43 / doddigunn
Komið þið sæl og blessuð
Hvað er að frétta af ykkur? Það er allt gott að frétta af mér.
En þarna ég er að útskrifast næskomandi föstudag úr Menntaskólanum
í Reykjavík og það verður stór stund í lífi mínu. Síðan vil ég
minna ykkra á það að á föstudeginum þann 26. maí verður haldið mega
party/útskriftarveislu í sjálfstæðissalnum út á Seltjarnarnesi og
er þér boðið að koma og skemmta þér pínu lítið og sjá aðra.
Endilega lattu sjá þig
Kveðja Doddi
»
26.04.2006 10:12:48 / doddigunn
Jójó hómís
Hvað er að frétta? Ég hef ákveðið að starta þessu og er meira að
segja búinn að skrifa færslur með stuttu milli bili, hversu nett
getur það orðið? Ég er í þessum skrifuðu orðum að taka mér smá pásu
frá íslenskunni. Hann Heimir Pálsson BESTI VINUR MINN er að gera
mig crazy in the brainhouse en það er í lagi því að þetta reddast.
Ég var síðan að spá að það ætti að gera bíómynd um mig þannig að
allir geti fengið að njóta hundsins voff, voff. Væri til valið að
hafa bolbít í aðalhlutverkinu. HAHAHAHA

En í gær gerðu ARSENAL Villa real jafnatefli og
vil ég sýna íþróttamannslegahegðun og óska ARSENAL mönnum til
hamingju með að vera komnir í úrslitin í meistaradeildinni. Til
hamingju. Nú ætti góð vinur minn, Fúsa, Teits og Egils að vera
ánægður ARSENAL ER BARA AÐ VERÐA HEIMSMEISTARAR, allir saman nú
AAAAAAARRRRRRSSSSSSEEEEEENNNNNNNAAAAAALLLLLL!!!!!!!! En ég vona
samt sem áður að BARCELONA vinni AC Milan í kvöld.
Vil ekki hafa þetta lengra núna, but there is more to come. Keep
on reading.
OVER AND OUT
»
24.04.2006 10:34:44 / doddigunn
Jóhó hómís
Það er svo langt síðan að hér var bloggað, það er margir sem að
eru hættir að lesa þetta blogg enda er enginn sem að skrirfar á
þetta. Maður ætti kannski að leyfa ykkur að fá notendanafn og
lykilorðið svo að þið getið skrifað á þessa síðu, en hvað um
það.
Ég er núna í prófunum og get ekki fuckin beðið með það að klára
þetta helvíti síðan verður mega party í sal sjálfstæðismanna á
nesinu 26. maí. Ég verð með bjór flæðandi í gríð og erg alveg 180
lítra, hvítvín og rauðvín og léttar veitingar OG ÞÉR ER BOÐIÐ. Ég
er með þessu að halda upp á stúdentinn og 20 ára afmælið mitt, ég
veit að það er seint en marr hefur kannski ekki verið í stemmingu
til að halda upp á það fyrr en núna. Ég átti von á að fá JEFF
WHO! en ég vona að þeir mæta, annars voru þeir að gera samning við
plötufyrirtæki í UK og er kannski að túra á þessum tíma en ég vona
að þeir geti mætt. Ég vil síðan koma því á framfæri að ég er ekki
sjálfstæðismaður þótt ég haldi veisluna þar ég hata KAPITALISTA sem
að vilja einkavæða allt landið. En nóg um það. Endilega látið orðið
berast af veislunni og að ég sé byrjaður að blogga aftur.
Síðan gæti verið að maður sé að fara til DK í háskólanám, en við
bíðum og sjáum til með það.
OVER AND OUT
»
14.12.2005 11:54:02 / doddigunn
Jó jó hómís
Hvað er að frétta af ykkur. Sorry Blöndal, maður verður víst að
minnast á þetta, en ég fékk allt draslið sem að ég setti upp á
svölunum hjá Pétri Blöndal í BYKO sem að byggir með þér. Já þá er
það komið á framfæri. En ég sit hér heima sveittur og pirraður að
læra fyrir stærðfræðipróf sem að ég tek núna á föstudaginn. Eftir
það þá fer maður á Kvennóball og gerir e-ð þar. Síðan er jólball
hjá MR eftir helgina eða á mánudeginum.
Hundurinn er búinn að fara í klippingu hjá meistara Hlyni og er
kominn með dökkt hár. Síðan fékk þrenn ný gleraugu í gær og er mjög
ánægður með það. Fyrst maður er búinn að þurfa að lifa með þetta í
meira en 11 ár að hafa þetta aparat á trýninu þá má maður skella
sér á svona pakka og kaupa e-ð DESIGN. En hundurinn kveður að
sinni.
Eitt að lokum ég er farinn að hlakka til 22. des, er það ekki
annars sá dagur sem að við stráarnir förum í PERLUNA? Hvernig væri
nú að fara að taka almennilegan bolta út í KR eða út á Nesi? Ég er
meira en til í það.
Sæl að sinni
»
12.12.2005 09:56:02 / doddigunn
Jó hó pussies. Það er kominn mánudagur og enginn hefur þorða koma
heima til mín í kökur og kaffi, ekki heldur til að kýla mig í
magann. En ég er að blogga núna og mun reyna að halda blogginu mínu
virku eða allavegana meira en ég gerði. Prófin að vera búinn, en þá
eru háskóladúdarnir að byrja í sínum. Ekki gott mál.þar á ferð. En
allur laugardagurinn fór í það að kaupa einhverja jólaútiseríu til
að setja á svalarnir og sunnudagurinn í það að setja þetta upp.
Ekkert neitt skemmtilegt þar á ferð. En því miður þá verð ég að
hafa þetta stutt. Verð að vera duglegur að lesa stærðfræði. Kveðja
Doddi
»
08.12.2005 22:36:46 / doddigunn
Jó jó jó mófó hómbó!!!
The dog has returned from the grave. Já það er
satt, hundurinn er byrjaður að blogga. Ég stóð við loforðið, þökk
sé minni kærustu, annars væri ég eflaust kýldur af um þúsund manns
í magann. Henni þykir bara svo vænt um mig og mér um
hana.
Hundurinn er bara hress það er allt gott að frétt
nema að ég var veikur núna síðastliðinn mánudag og missti af
stærðfræðiprófinu. Meiri auminginn þar á ferð. En á morgun þá fer
kallinn til meistara Hlyns og mun greiða úr flækjunni. Þeir þekkja
Hlyn þeir sem að þekkja mig. Síðann er það að redda sér miðum á
Þorláksmessu tónleikana hans Bubba Kóngs, en það er orðið á götunni
að hann sé Kóngur Íslands í músík. Við vitum nú öll hver er hinn
rétt kóngur, NÚ AÐ SJÁLFSÖGÐU D-DOG, nei nei það er nú hann Davíð
Oddson sem að er kóngurinn. Ég er ekki sjálfstæðismaður bara svo að
þið vitið, ég styð jafnaðarmenn í einu öllu og ég vil að jafnaði sé
gætt hér á landinu.
Nóg komið af bulli, nú er það the real stuff.
Kallinn er lifir núna geggjuðu lífi þar sem að þörfum hundsins er
fullnægt í einu og öllu. Það er bara klikkað að vera til núna í
augnablikinu. Maður er að koma úr myrkrinu eftr langa hríð. Trúið
mér það er ekki gaman að hanga í myrkrinu.
En hér er ein jólamynd til að kæta
ykkur:


»
30.11.2005 14:55:21 / doddigunn
Jæja hvað er nú að frétta. Hef ekki mikinn tíma núna, prófin að
byrja og svona. En hér kemur eitt loforð. Ég er búinn í prófunum
8.des.2005 og ef ekki kemur inn færsla þá og síðan annan hvern dag
þar eftir þá megið þið kýla mig í magann. Þetta er loforð kæru
aðdáendur sem verður efnt. Undir þetta skrifar Þórður Gunnar
Þorvaldsson
»
06.09.2005 23:09:05 / doddigunn
Jæja hvað er títt,
Ég lofaði í sumar að ég skildi koma með major update á síðunni
minni. Það er bara eitt vandamál ég kann bara ekki nógu vel á þetta
dæmi og er að reyna að redda því.
Mig langaði bara til að skirfa e-ð og tjá mig. Ég er byrjaður í
MR aftur for the last time. Marr er alveg hreint að brillera í
þessu. Vona að marr nái betri árangri í stærðfræði. Fyrsta
stærðfræðiprófið mitt var í gær og mér gekk alveg ágætlega. Síðan
er marr búinn að vera að þjálfa á fullu undanfarið og kominn alveg
inní jobbið. Þetta er alveg ágætt frekar mikil vinna og mér finnst
erfiðara að vera að þjálfa svona eldri krakk. En síðan er marr
byrjaður á því að synda aðeins og í waterpoloinu. By the way það
var æfing núna áðan og kallinn var að fara á kostum skoraði hver
markið á fætur öðru. Átti meira að segja mark leiksins sagði Ómar
Samír.
En núna á fimmtudaginn þá er busadagurinn í MR. Marr veit ekki
hvort maður eigi að vera að taka þátt í tolleringunni aftur og því
en hver veit. Síðan er náttúrulega ballið um kvöldið og fyrirpartý
sem að verður í Árbænum hjá stelpu sem að heitir Ólöf. Marr ætlar
núna að takast að komast á ballið. Ekki enda sauðadrukkinn
einhversstaðar inn í herbergi hjá góðum vini mínum. Hann veit hvað
ég að tala um.
En hundurinn kveður að sinni, þangað til næst voff, voff
»
31.08.2005 23:05:27 / doddigunn
Sælir
Stráar
Ég hef
ákveðið að taka skarið og vekja upp hinn gamla góða stráastemmer.
Ég veit að margir eru til í að hittast á fös og spila fótbolta. Ég
persónulega er til og er tilbuinn að hafa umsjón með því að leigja
sal en hafið það á hreynu að ég mun ekki leggja út fyrir honum
allir þurfa að borga jafnt.
Ég hef
ekki orðið mér út um upplýsingar um hugsanlegt verð. Ég veit að
einhverjir af okkur vita það um það bil.
En
þeir sem hafa áhuga að vera með okkur í reglulegum bolta yfir
veturinn endilega kommentið og segið til um hvort þið séuð inn eða
út. Þá get ég búið til lista yfir þá sem vilja vera með og reynt að
finna tíma handa okkur. Eru ekki allir sáttir með að reyna að fá
tíma á föstudögum klukkan sjö eða átta? Bara hugmynd. En eitt þeir
sem vilja vera með þurfa að vera 100% vissir um að þeir komi til
með að mæta og helst að hafa sléttatölu.
Þeir
sem eru game kommenta, engir aðrir...
»
09.08.2005 01:12:16 / doddigunn
Jáhá góðan daginn,
Kallinn er mættur. D-Dog er
kominn á klakann villtur að vanda og til í þetta allt saman
nema að þvo þvotta og vaska upp. Það er bara fyrir you know
who. Bara djókur. En hvað segið þið þarna úti. Eruð þið ekki
í stuði. Ég lofað endurbótum á þessari síðu og þær skulu sko
verða heldur betur miklar. Bara þegar ég nenni að gera það.
Er ekki í stuði til þess núna er alltof þreyttur þegar ég
skirfaði þessa færslu.
Ekkert spes hefur gerst í lífi
D-Dog, hann þrælar bara eins og hundur alla daga. Kobbi Phil
er mættur aftur með þessa bölvuðu krakka sína á
sundlaugartúnið í einhverj leiki og kennir þeim að kalla
D-Dog, D-Dog D-Dog D-Dog í tíma og ótíma. Þannig að það
virðist vera að kallinn á sér fans, ekki bara ykkur lesendur
góðir. En það sem er að frétta af mér er að ég á leiðinni til
Kóngsins Köbenhavn, verð þar frá 10. ágúst til 18. ágúst. Ég
er að fara með crewinu, Kela; Fuzza Fuzz, Eagle og Tootsy,
D-dog flýgur þarna með þeim líka. Verðum fyrstu fjóra dagana
í einhverri íbúð síðan hjá einhverju háskóla fólki. Heyrst
hefur að fúsi ætli að gera e-ð wildað stuff. En þið fáið að
heyra ferðasöguna hér í beinni, þó kannski ekki alveg. En
síðan hef ég fengið atvinnutilboð um að vera aðstoðarþjálfari
meistaraflokks KR í sundi og kallin var ekki lengi að þiggja
það boð. En marr verður að passa sig, ég veit ekki hvort að
ég vilji gera þetta að lifetime jobbi. En þetta er stórt
stökk á sundþjálfarasviðinu.
Ég er fainn að undirbúa mig
fyrir ferðin til Köben over and out.
»
01.08.2005 22:49:53 / doddigunn
Já já
Það orðið langt um liðið síðan að ég skrifaði síðustu færslu.
Menn eru farnir að ýta á mig til þess að skrifa meira. Já það er
alveg rétt hjá ykkur aðdáendur góðir, ég verð að vera duglegri við
þetta. En núna síðast helgi var skemmtileg, ég var að vinna til tíu
um kvöldið og skellti mér síðan með Ásgeiri í bústaðinn hjá Gunna
Jó. Bústaðurinn eða einn af þeim var kallaður Honolulu. Ég og
Ásgeir komum þangað rétt fyrir miðnætti. Þá voru allir orðnir vel í
glasi og segi ég ekki meir. What happens in Honolulu stays in
Honolulu.
Ég skemmti mér mjög vel allavegana þennan stutta tíma sem að ég
og Ásgeir vorum þarna.Ég vann síðan allan sunnudaginn og allan
verslunarmannadaginn, þannig að maður er að raka inn
peningunum.
En allir sem voru í Honolulu takk fyrir helgina.
»
01.08.2005 00:27:08 / doddigunn
Kjéllinn var náttla bara að enda við að skrifa um sjálfan sig í
dálkinn til vinstri, enjoy!
»
21.07.2005 22:05:47 / doddigunn
Þið þarna úti,
Hundurinn er orðinn til og er alltaf nettur, viltur og til í
tjellurnar. En það sem ég hef verið að pæla þessa dagana er að "lay
low" láta þessar stelpur bara koma til kallsins. Það þýðir ekkert
annað. Ég segi nú bara svona.
En shit sumarið er að verða búið og marr ekki enn kominn á fast,
HAHAHAHA engar áhyggjur marr hefur einhver spil á hendi, kannski að
marr trompi þetta bara. En vitið þið hvað. Í gær 20.júlí þá hennti
ég henni Veru baby útí laugina því að hún var búin að vera með
einhverju helvítis stæla. Síðan er helgin framundan og einhverji
ætla víst að skemmta sér ærlega. Það eru víst afmæli hjá Klængi og
hjá Eldi basketballdude. En ég nenni ekki að skrifa meira.
L8er
»
12.07.2005 22:16:34 / doddigunn
Já gott kvöld eða góðan daginn
Já ég er mættur aftur til að blogga. Það er ekki langt á milli
færslana hjá mér. Dagurinn í dag var erfiður í vinnunni. Ég átti
morgunvakt og þurfti því að vakan klukkan sex og vann til tvö. Ekki
nema það að svona um tíu/ellefu leytið þá mætti maður sem var svona
24 ára gamall. Hann settist niður í andyrinu og hamstaði kaffið sem
hellt er uppá fyrir gesti morgunsins, eftir það sofnaði hann í
stólnum sínum. Síðan rauk hann niður í karlaklefann án þess að
segja til sín og hélt að hann gæti farið óséður í sund, en ég hélt
nú ekki, fór niður og stoppaði hann og sagði að það væri betra að
láta vita af sér áður en menn færu niður í í klefann. Hann svarði
að hann væri með öryrkjakort. Allt´í lagi með það bara að láta vita
af sér áður en menn fara niður. Síðan var hann í sundinu og hagaði
sér eins og fífl þar. Síðan sýndi hann stúlku sem er að vinna við
og þrif og annað í lauginni puttann og forstöðukonan sá það og
ákvað að tala við hann. Hann hafð nefnilega verið í sundi í gær og
hagaði sér óeðlilega þar líka, en þá var ég í fríi. Þegar
forstöðukonan var að tala við hann í grunnaenda djúpulaugarinnar þá
fannst honum hún vera að veitast e-ð að henni og greip í handlegg
hennar og reyndi að tosa hana út í. Þá var mér nóg boðið og skarst
inní leikinn. Við það koma þarna til þeirra þá hrækti hann framan í
mig og það fyllti mælinn, ég skipaði honum reiðri röddu að hypja
sig upp úr og snáfa heim. Hann gerði enda þorði hann ekki að
veitast að mér.
Ég fylgdist síðan með honum í klefanum svo að hann væri nú ekki
að skemma e-ð í klefanum. Síðan tók forstöðukonana á móti honum og
talaði við hann og sagði honujm að hann ætti að taka sér frí frá
lauginni því að starfsfólki laugarinnar stóð ógn af honum. Þá kom
upp á bátinn að þessi maður var svona verulega mikið geðveikur og
haldinn gífurlegum ranghugmyndum því að honum fannst stelpan sem
var að þrífa vera að ógna sér og ætlaði að koma að berja sig og
síðan fannst honum forstöðukonan ætla að berja sig og væri því að
verja sig. En greyið á greinilega svona mikið bágt.
Það er greinilega margt sem marr lendir í lauginni. Það mikið
fjör í þessari vinnu.
Heil og sæl
Þórðu Gunnar
»
11.07.2005 22:13:44 / doddigunn
Jáhá góðan daginn
Ég hef ákveðið að standa upp og rífa af mér rassgatið og blogga
svona til tilbreytingar. Málið er að D-dog hefur verið í fangelsi í
RIO og ég Þórður Gunnar hef verið úti að reyna að ná honum út.
Þessir helvísku Brassar vita ekkert í sinn haus og þegar ég talaði
íslensku við þá, þá skildu þeir ekkert. En allavega þá er
D-hundurinn kominn aftur á klakann og hefur ákveðið að hjálpa mér
að vekja þessa síðu aftur upp frá dauðum.
Það sem er að frétta af mér er að D-Doginn veður í stelpum en ég
er á lausu og vinn í Vesturbæjarlauginni eins og ég hef gert
undanfarin sumur og er farinn að þekkja allt þarna í lauginni og
meira að segja farinn að þjálfa upp nýja laugarverði. Ég mun síðan
í ágúst fara aftur í MR og kláran þá. Vona að allir aðdáendur mínir
séu þá ekki búnir að gleyma mér.
Eitt að lokum fljótlega mun ég opna myndalinka hér á síðunni og
verða einhverjar viltar myndir og video.
Takk fyrir mig og verði ykkur að góðu.
»
Síður: 1 2 3 4
|
|