Jó jó hómís
Hvað er að frétta af ykkur. Sorry Blöndal, maður verður víst að
minnast á þetta, en ég fékk allt draslið sem að ég setti upp á
svölunum hjá Pétri Blöndal í BYKO sem að byggir með þér. Já þá er
það komið á framfæri. En ég sit hér heima sveittur og pirraður að
læra fyrir stærðfræðipróf sem að ég tek núna á föstudaginn. Eftir
það þá fer maður á Kvennóball og gerir e-ð þar. Síðan er jólball
hjá MR eftir helgina eða á mánudeginum.
Hundurinn er búinn að fara í klippingu hjá meistara Hlyni og er
kominn með dökkt hár. Síðan fékk þrenn ný gleraugu í gær og er mjög
ánægður með það. Fyrst maður er búinn að þurfa að lifa með þetta í
meira en 11 ár að hafa þetta aparat á trýninu þá má maður skella
sér á svona pakka og kaupa e-ð DESIGN. En hundurinn kveður að
sinni.
Eitt að lokum ég er farinn að hlakka til 22. des, er það ekki
annars sá dagur sem að við stráarnir förum í PERLUNA? Hvernig væri
nú að fara að taka almennilegan bolta út í KR eða út á Nesi? Ég er
meira en til í það.
Sæl að sinni